Starfsmaður getur búið til nýtt lykilorð inni í vefkerfinu. Þá smellir hann á nafnið sitt efst í hægra horninu og velur Stillingar úr listanum.
Sama lykilorðið er slegið inn í Lykilorð og Endurtaka lykilorð og síðan smellt á Skrá hnapp til að vista.
Ef starfsmaður hefur gleymt lykilorðinu sínu getur hann, bæði á innskráningarsíðu vefkerfisins og appsins, valið Gleymt lykilorð, sett inn netfangið sitt í gluggann sem birtist og smella á Virkja hnapp. Innan fárra mínútna fær viðkomandi sendan póst um nýja lykilorðið í tölvupósti.
Einnig getur skólastjórnandi útbúið nýtt lykilorð fyrir starfsmanninn:
- Starfsmaður valinn úr starfsmannalista.
- Smellt á Breyta starfsmanni hnapp.
- Flipinn Notandi valinn.
- Lykilorð slegið inn tvisvar, sbr. hér að ofan.
- Smellt á Uppfæra hnapp til að vista breytingar.