Byrjið á því að velja Matseðill í láréttu valmyndinni, sbr. myndi hér fyrir ofan.
Matseðilinn er hægt að setja inn á þrjá vegu:
- Skrá hverja máltíð fyrir sig, handskráð.
- Skrá heila viku, handskrá hverja máltíð, hvern dag vikunnar.
- Með því að lesa inn skrá sem unnin hefur verið í Excel og vistuð sem .csv textaskrá. Skráin getur innihaldið nokkrar vikur fram í tímann og gefur færi á að vera með endurtekinn matseðil. Þetta er fljótlegasta og besta aðferðin.
1. Hver máltíð skráð fyrir sig: Lýsing á máltíð, hvaða máltíð um ræðir, hvort hún innihaldi ofnæmisvalda og síðan dagsetning máltíðar.
2. Fyrst er settur inn upphafsdagur vikunnar, sem er alltaf mánudagur og smellt á Skrá hnapp.
Síðan er skráðar máltíðir fyirr hvern dag vikunnar. Vikudagurinn birtist efst í glugganum.
Vista þarf hvern dag fyrir sig með Skrá hnappi.
Þriðja aðferðin er lang best.
3. Smelltu á hnappinn CSV upphleðsla og veldu Hlaða niður sniðmáti og vistaðu skrána í tölvunni hjá þér.
- Opnaðu skrána til að setja inn máltíðir.
- Skráin kemur uppsett með dagsetningum fyrir allan næsta mánuð.
- Unnið er með skjalið eins og hvert annað excel skjal, t.d. með því að afrita/líma texta.
- Ekki eiga að vera dagsetningar fyrir laugar- og sunnudaga.
- Ef frídagur er á tímabilinu, er settur inn texti eins og t.d. "Frídagur" í stað máltíða.
- Skráin er síðan vistuð.
- Nú þarf að koma henni inn í kerfið og er þá aftur ýtt á CSV upphleðsla hnappinn.
- Skráin er síðan dregin yfir á gráa reitinn og smellt á Skrá til að vista. Einnig er hægt að smella á gráa reitinn og sækja skrána í skráarsvæði tölvunnar.