Skólastjórnendur geta ákveðið að senda foreldrum tölvupóst bæði þegar umsókn berst inn í Karellen og eins þegar umsókn er staðfest og barn sett á biðlista.
Stillingar er að finna í hnappnum Stillingar skóla undir flipanum Stillingar umsókna. Þar eru þrír reitir sem hægt er að setja texta í, sjá skjáskot hér fyrir neðan.
Lýsing á leikskóla:
Ef sett er lýsing í þennan reit birtist hún neðst í tölvupóstinum.
Tölvupóstur sendur til foreldra þegar umsókn er samþykkt:
Textinn í svæðinu er sendur í tölvupósti í netföngin sem tilgreind eru í umsókninni, þar sem þeim er tilkynnt að umsókn hafi verið samþykkt.
Ef hak er sett í Senda tölvupóst til aðstandenda þegar ný umsókn berst er send staðfesting á móttöku í netföngin sem eru tilgreind í umsókninni. Einnig fylgir með afrit af umsókninni í viðhengi tölvupóstsins.
Tölvupóstur sendur til aðstandenda þegar umsókn berst:
Textinn í svæðinu er settur í tölvupóstinn til foreldra.
Það er hægt að sérsníða bréfin þannig að kerfið sæki upplýsingar úr umsókninni og setji inn í fyrirfram skilgreinda staði. Þá er settur svokallaður staðgengill til að kerfið skilji hvaða upplýsingar eiga að koma í staðinn og er nauðsynlegt að setja slaufusviga utan um textann. Dæmi um þetta eru í skjáskotinu hér að neðan, auðkennd með grænu undirstriki.
Mögulegir staðgenglar eru:
{student_name} | nafn nemanda |
{student_ssn} | kennitala nemanda |
{kindergarten_name} | nafn skóla |
{kindergarten_tel} | símanúmer skóla |
{employee_name} | nafn starfsmanns |
{employee_email} | netfang starfsmanns |
{application_id} | númer umsóknar |