Ef þörf er á að sía lista, t.d. birta bara nemendur sem er fæddir á ákveðnu ári, eða eru af ákveðnu kyni er smellt á plúsinn hægra megin við leitarsvæðið í rauðu stikunni.
Síðan eru sett inn viðeigandi gildi í svæðin sem í boði eru og smellt á Leita hnapp.
Þarna er líka hægt að prenta lista og hlaða þeim niður í textaskjali. Einnig er hægt að prenta út úr kerfinu með Ctrl+p skipun.