Veljið Starfsmenn í lágréttu valmyndinni. Í Netfangalisti starfsmanna er hægt að ná í netföng starfsmanna til að senda á þá tölvupóst. Í Símanúmer starfsmanna er hægt að ná í lista yfir farsímanúmer starfsmanna og senda á þá textaskilaboð, ef þið eruð með forrit til að senda SMS.
Einnig er hægt að prenta út eða vista í starfsmannalistann. Þá er smellt á plús merkið og er Print list hnappur notaður fyrir útprentun. Það er líka hægt að vista listann á excel textasniði með Hlaða niður lista hnappi.
Hér eins og í öðrum listum í kerfinu geta notendur ráðið uppröðun lista. Leiðbeiningar hér: Uppröðun lista.