Í Karellen er hægt að kalla fram viðveru nemenda. Hægt er að kalla fram viðveru allra nemenda á virkum nemendalista, eftir deild eða hjá einstaka barni.
Viðvera allra nemenda á virkum nemendalista
- Flipinn Nemendur valinn og Viðvera í vinstri valmynd.
- Ýta á plúsinn í rauðu stikunni og opnast gluggi þar sem hægt er að sía gögnin miðað við tegund mætingar og tímabil.
- Í Tegund er hægt að velja ákveðna tegund skráningar og/eða velja ákveðið tímabil með Færsla frá og Færsla til.
- Þar er einnig hægt að prenta listann, með Prenta hnapp eða vista listann í skrá á tölvuna með Hlaða niður lista.
Viðvera fyrir deild
Er eins og fyrir alla nemendur nema þá er valin Deild, Nemendur og Viðvera í vinstri valmynd. Síðan er möguleiki að sía gögn og vinna með þau á sama hátt og líst er hér að ofan.
Viðvera einstaks nemanda
Nafn barns er valið og Viðvera í vinstri valmynd. Síðan er möguleiki að sía gögn og vinna með þau á sama hátt og líst er hér að ofan.
Til að breyta röðun lista er smellt á nafn dálks:
ATH. Í tannhjólinu vinstra megin í rauðu stikunni er hægt að velja hvaða gögn eiga að vera í viðeigandi lista og raða honum að vild. Leiðbeiningar hér: Röðun lista