Skráning á flokkum framvindu er í Stillingar skóla hnappi með skóla valinn.
Sett er inn nafn flokksins og lýsing á honum og síðan smellt á Skrá hnapp til að vista. Einnig er hægt að breyta fyrri skráningum með því að smella á tannhjólið hægra megin í viðeigandi línu og velja Breyta.
Þegar búið er að skrá framvinduflokka er hægt að fara að skrá framvindu náms hjá nemendum.
- Smellt er á nafn nemanda og Framvinda valin í vinstri valmynd.
- Smellt er á Skrá framvindu náms og birtist þá ofangreint skjáskot.
- Dagsetning, leiðbeinandi, flokkur og lýsing er skráð og smellt á Skrá hnapp til að vista.
- Foreldrar geta fylgst með framvindu barna sinna bæði á vefnum og í appinu.