Ef þú lendir í því að appið hendi þér út þegar þú hefur skráð þig inn þá skaltu athuga hvaða útgáfu af appinu þú ert með. Það gerir þú með því að smella á Um Karellen á innskráningasíðunni nýjasta útgáfan er 3.0.9 (18.5.2022)

Þegar nýjar útgáfur koma þá kemur rammi með tilkynningu þegar notandi opnar appið sem býður notandanum upp á að uppfæra appið. Ef notandinn samþykkir ekki þegar tilkynningin kemur þá þarf hann að uppfæra appið sjálfur. Það er gert með því að eyða appinu út og sækja það á ný.