Skólastjórnandi hefur ekki aðgang að nemendafærslum þeirra nemenda sem eru hættir námi og erum í Námi lokið listanum.  Ef hann þarf að nálgast upplýsingar um nemandann getur hann sett nemandann aftur í nám.

 

Viðveruskráningar fyrir einstakan nemanda

  • Smellt á nafn barns í nemendalista.
  • Viðvera valin úr vinstri valmynd.
  • Í plúsnum í rauðu stikunni er hægt að velja ákveðna tegund viðveru og tímabil með því að setja inn dagsetningar. 
  • Smella á Prenta hnapp.  Einnig er hægt að vista listann í skrá með því að smella á Hlaða niður lista.


Viðveruskráning fyrir alla nemendur í deild

  • Deild flipi valinn.
  • Nemendur flipi valinn.
  • Smellt á Viðvera í vinstri valmynd.
  • Listi síaður, þ.e. tegund og tímabil, eins og gert er fyrir einstakan nemanda, sbr. hér fyrir ofan.
  • Síðan er hægt að prenta listann út eða vista sem textaskrá, sbr. hér fyrir ofan.



ATH.  Þegar börn eru skráð aftur inn í skólann þá koma þau inn í tölfræði skólans.  Því er mikilvægt að útskrifa börnin strax aftur úr leikskólanum þegar gögnin hafa verið sótt.