Umsóknir sem berast í kerfið birtast undir Nemendur - Umsóknir og fá sjálfgefið stöðuna Bíður afgreiðslu.


BREYTA:

Til að breyta umsókn er smellt á tannhjólið hægra megin í línunni við nafn barnsins og valið Breyta úr listanum.  Upplýsingum er breytt og síðan smellt á Skrá hnapp til að vista.


ATHUGIÐÞað á ekki að samþykkja umsókn hér, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan.  

Ekki á að nota Krefst yfirferðar í stöðu umsóknar.



AFGREIÐA:

Til að afgreiða umsókn er smellt á nafn barnsins í listanum og síðan er hún annað hvort samþykkt með Samþykkja hnappi eða henni hafnað með Hafna hnappi.


Þegar umsókn hefur verið samþykkt flyst hún yfir í Afgreitt listann í umsóknum og aðstandendur fá tölvupóst um að umsóknin hafi verið samþykkt.  

Hver skóli fyrir sig getur stillt hvort eigi að senda þennan póst eða ekki (leiðbeiningar hér: https://leikskolinn.freshdesk.com/a/solutions/articles/9000216175) og einnig ráðið hvaða texti er í tölvupóstinum (leiðbeiningar hér:  https://leikskolinn.freshdesk.com/a/solutions/articles/9000215593).


Þegar umsókn hefur verið samþykkt býr kerfið til nemandaspjald fyrir barnið, með öllum upplýsingum úr umsókninni og fær barnið stöðuna Í bið.  Listi yfir alla nemendur á bið er að finna í Biðlisti listanum, sjá skjáskot. 


ATHUGIÐ: Þetta er eina rétta leiðin til að samþykkja umsókn þannig að til verði nemandaspjald og að tölvupóstur fari til aðstandenda.

 

Til að gera barn að virkum nemanda er hakað við nafn nemandans, smellt á hnappinn Breyta stöðu og velja Nemandi úr fellilistanum.  Þetta er hægt að gera fyrir marga nemendur í einu með því að setja hak við þá nemendur sem á að virkja í námi.



Sé umsókn hafnað flyst hún í Hafnað listann í umsóknum. Ekki er sendum tölvupóstur til aðstandenda.